Rub 23
Jólamatseðill Rub 23 er í boði alla daga frá miðvikudeginum 11. nóvember til 31. desember, nema 24. og 25. desember þegar lokað er. Rub 23 tekur á móti hópum allt að 50 manns.
14.490 kr. á mann, 24.490 kr. með vínpörun.
Borðapantanir í síma 462 2223 eða á [email protected].
Bautinn
Jólahlaðborð á Bautanum helgarnar 4. og 5., 11. og 12. og 18. og 19. desember. Upplagt fyrir fjölskyldur og minni hópa.
10.990 kr. á mann. 10 ára og yngri borða frítt.
Borðapantanir í síma 462 1818 eða á [email protected].
Smáréttir
Jólasmáréttir frá Rub 23, sóttir á Rub 23.
Lágmarkspöntun 8 manns. 8 bitar á mann 5.290 kr., 10 bitar 6.610 kr., 12 bitar 7.930 kr.
Pantanir á [email protected] eða í síma 462 2223.
Maturinn heim
Lúxus jólamatur frá Rub 23 til þín. Matreiðslumaður kemur með matinn og sér um veitingarnar á meðan borðhaldi stendur.
19.890 kr. á mann. Lágmarkspöntun er 10 manns.
Pantanir á [email protected] eða í síma 462 2223.
Hlaðborð í veisluna
Jólahlaðborð Bautans á vinnustaðinn eða í sal, og jólakjöt Bautans.
Jólahlaðborð út úr húsi 10.990 kr. á mann, lágmarkspöntun 12 manns. Jólakjöt Bautans 7.890 kr. á mann, lágmarkspöntun 8 manns. Við sendum jólakjötið ef pantað er fyrir 20 manns eða fleiri.
Pantanir á [email protected] eða í síma 462 2223.
Pizzasmiðjan
Á Pizzasmiðjunni getum við tekið á móti hópum allt að 45 manns í jólahlaðborð, upplagt fyrir minni vinnustaði eða vinahópa.
Hópurinn er út af fyrir sig í sal Pizzasmiðjunnar.
Sendið fyrirspurn á [email protected].
Jólahátíð Norðurlands
Jólahátíð Norðurlands verður í Íþróttahöllinni á Akureyri 28. nóvember. Jólahlaðborð, jólastemning og ball. Tilvalið fyrir vinahópa og vinnustaði, og við getum tekið á móti stórum hópum.
Húsið opnar kl. 18 með fordrykk.

Borðapantanir á [email protected].
