Veisluborð dekkað

Veisluþjónusta á Akureyri

Segðu okkur hvernig þú sérð veisluna fyrir þér. Við sjáum um hana á meðan þú nýtur kvöldsins.

Fyrir tólf manns eða fleiri.

Rub 23 og Bautinn bjóða upp á sameiginlega veisluþjónustu fyrir árshátíðir, ráðstefnur, brúðkaup, afmæli, þorrablót, vinnustaðahittinga og jólahlaðborð. Við getum mætt hvar sem er og hvenær sem er.

Við sjáum um veitingar, þjónustu og borðbúnað og útvegum borð og stóla ef þarf. Veldu úr hlaðborðum, smáréttum og þriggja rétta veisluseðlum.

Senda fyrirspurn
Réttur úr eldhúsi Rub 23

Matseðlar og verð

Skoðaðu hlaðborð, smárétti og hópamatseðla Rub 23. Þriggja rétta veisluseðill fæst eftir fyrirspurn.

Spurt og svarað

Fyrir hversu marga gesti takið þið að ykkur veislur?

Við tökum að okkur veislur fyrir 12 manns og upp í mjög stóra hópa. Hlaðborð eru í boði fyrir 20 manns eða fleiri og eingöngu afgreidd út úr húsi.

Fylgir starfsfólk hlaðborðinu?

Starfsmaður fylgir ekki með ef gestir eru færri en 40, en hægt er að óska eftir starfsmanni gegn gjaldi. Kaldir og heitir réttir eru bornir fram á hlaðborðinu á sama tíma.

Hvað þarf marga smárétti á mann?

Í sitjandi veislu, til dæmis brúðkaupi, er miðað við 14 til 16 bita á mann. Fyrir standandi veislu henta 10 til 12 bitar á mann og fyrir fundi og síðdegisboð 6 til 8. Fyrir stutta fundi og móttökur sem standa í um klukkustund er miðað við 4 til 6 bita á mann.

Hvað kostar veisluþjónustan?

Hlaðborð kosta frá 7.490 kr. á mann (20 manns eða fleiri), smáréttir frá 4.490 kr. á mann fyrir 8 bita og hópamatseðlar Rub 23 frá 13.890 kr. á mann á kvöldin og 4.890 kr. í hádeginu (20 manns eða fleiri). Verð á hlaðborðum, smáréttum og hópamatseðlum eru hér á síðunni og þriggja rétta veisluseðill fæst eftir fyrirspurn.