Um okkur

K6 veitingar reka þrjá veitingastaði í hjarta Akureyrar og bjóða upp á mat til að taka með í Krónunni.

Deilidiskar á borðinu: steik á steinplötu, smáréttir og kokteill

Einar og Heiðdís.

Einar var í kokkalandsliðinu um árabil og var matreiðslumaður ársins 2003. Hann hefur tekið þátt í heimsmeistaramótum og ólympíuleikum í matreiðslu og unnið til fjölda verðlauna, bæði gull- og silfurverðlauna.

Á öllum stöðunum er markmiðið það sama: hágæða þjónusta og úrvalshráefni. Þar er alltaf eitthvað fyrir alla.

Bautinn við Hafnarstræti 92

Staðirnir.

  • Bautinn

    Veitingastaður síðan 1971. Bautinn er í einu elsta og virðulegasta húsi bæjarins, sem var byggt 1902.

    Hafnarstræti 92, 600 Akureyri

  • Rub 23

    Rub 23 opnaði í júní 2008 við Kaupvangsstræti 23. Í mars 2010 flutti staðurinn í stærra húsnæði við Kaupvangsstræti 6. Sjávarréttastaður með fjölbreytt úrval fisktegunda og mikið úrval sushi-rétta, í bland við kjötrétti.

    Kaupvangsstræti 6, 600 Akureyri

  • Pizzasmiðjan

    Pizzasmiðjan opnaði 12. febrúar 2019 og er nýjasta viðbótin hjá K6 veitingum. Pizzur Pizzasmiðjunnar fást í sal á Bautanum og í takeaway.

    Hafnarstræti 92, 600 Akureyri

  • Rub 23 Takeaway í Krónunni

    Allt takeaway frá Rub 23 er afgreitt frá Rub 23 Takeaway í Krónunni við Tryggvabraut. Ekki er hægt að greiða með gjafabréfi í Krónunni. Opið alla daga kl. 8 til 21, sama og Krónan, líka um jól og áramót.

    Tryggvabraut, 600 Akureyri